14.1.2016 | 11:23
Cia grautar
Chia grautur fyrir tvo
½ dl Chia fræ
vatn eða möndlumjólk/rísmjólk
banani eða aðrir ferskir ávextir eða frosin ber
kanill
Þegar fræin eru öll vel böðuð er gott að taka hálfan banana og mauka hann léttilega með grautnum með gaffli í skálinni eða setja frosin bláber eða önnur ber eða ávexti út í. Gott er að strá kanil yfir eða niðurskornum ávötum.. Þau eru ofurfæða og innihalda nær öll þau næringarefni sem líkaminn þarf á að halda,
Chia grautur Ebbu Guðnýjar:
1 msk chia fræ
100 ml vatn (beint úr krananum)
u.þ.b. 1 tsk kanill
Ávöxtur að eigin vali.
Chia og vatn sett saman í skál látið bíða í u.þ.b. 10 mín.
Setjið kanil út í, skerið niður ávöxt (mjög gott að hafa mango) og hendið út í. Algjört nammi.
Gómsætur Chia Grautur
1 bolli möndlumjólk (getur verið hvaða mjólk sem er, rísmjólk, haframjólk etc.)
1/5 bolli Chia fræ
1/4 tsk vanilluduft
1/2 epli skorið í bita og nokkur frosin hindber/bláber
Chia grautur í morgunmat eða millimál
Innihald:
- 2 dl frosin eða ferskur mangó ( mátt reyndar setja hvaða ávöxt sem þú vilt)
- 1 msk gojiber
- 1 msk chia fræ
- 9-10 msk vatn
- ½ tsk kanill
- 4 dropar vanillustevía Via-Health
Aðferð:
- Chia fræ sett í skál ásamt vatni,kanil og stevíu
- Látið standa í 10 mínútur
- Mangó og gojiber sett í aðra skál
- Graut hellt yfir þegar chia fræin eru tilbúin
- Njótið!
Chia grautur að hætti Davíðs
- 2-3 mtsk af Chia fræjum frá Naturya
- 2 mtsk af lífrænu kókoflögum frá Himneskri hollustu
- ½-1 epli lífrænt, niðurskorið
- 2 msk af hnetum eða fræjum (má sleppa)
- 1 msk kakónibs (má sleppa)
- 1 msk Goji ber (má sleppa). Goji ber eru mjög rík af andoxunarefnum og gefa góða orku
- Kanill til að bragðbæta. Kanill kemur reglu á blóðsykurinn
- Isola möndlumjólk eftir smekk hella henni útá hræra öllu saman og láta bíða í 5 mín
Kveðja
KRÓM
Munið eftir að líka við okkur á facebook HÉR
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.