22.12.2015 | 10:15
Laxakæfa
Laxakæfa
Innihald
- 500 g nýr lax, beinhreinsaður
- 250 g rækjur
- 175 g majones
- 175 g sýrður rjómi 10%
- 350 g þeyttur rjómi (3 ½ dl)
- 12 blöð matarlímsblöð
- hvítvín til að leysa matarlímið upp í
- Sósa
- 150 g majones
- 150 g sýrður rjómi
- ca 2 msk þeyttur rjómi
- sítrónusafi eftir smekk
- örlítill sykur
- hvítvín eftir smekk
Leiðbeiningar
Ferski laxinn er soðinn, kældur og beinhreinsaður. Tættur niður smátt með gaffli eða hakkaður, ásamt rækjunum, eftir hvað patéið á að vera gróft. Líka má skera fiskinn í litla bita.
Hrærið saman majonesi og sýrðum rjóma og blandið saman við fiskinn.
Þá er matarlímið lagt í bleyti og síðan leyst upp í hvítvíninu og því blandað saman við. Að lokum er þeytta rjómanum blandað varlega saman við. „Patéið“ kælt og skorið í sneiðar.
Sósa
Öllu hrært vel saman og borið fram með „patéinu“ ásamt ristuðu brauði.Fallegt að skreyta með harðsoðnum eggjum í sneiðum, ferskri steinselju og tómatsneiðum. Eða bara því sem manni dettur í hug.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.