Hér þarf ekki að hafa mörg orð þetta salat er einfalt og alveg dásamlega ljúffengt. Uppskriftin er fengin af Gulur, rauður, grænn & salt.
Sjá einnig: Crunchy sataysalat með cous cous, avacado og nachos
Dásamlega ljúffengt brokkólísalat
2 búnt brokkólí, stilkarnir skornir frá
1 rauðlaukur
1 dl furuhnetur
1 dl Hellmanns majones
1/2 dl sýrður rjómi
1 dl sykur
3 tsk. edik
- Saxið brokkólí og rauðlauk MJÖG smátt.
- Þeytið majones, sýrðan rjóma, sykur og edik vel saman eða þar til blandan er orðin dálítið froðukennd.Blandið öllu vel saman.
- Geymið aðeins í kæli áður en þetta er borðað. Verður bara betra eftir því sem á líður, jafnvel daginn eftir. Berið fram með brauði eða stökku kexi.
*Sumum þykir betra að hafa meira af sýrðum rjóma og þá má breyta hlutföllunum í 1 dl sýrður og 1/2 dl majones eða prufa sig áfram eftir eigin smekk.